Ekki er öll vitleysan eins...

25.06.2006 21:15:02 / Eva

meinilla farin...

og búin að vera...

jæja þar sem að fólk virðist eiga í erfiðleikum með að kvitta hérna á þessari síðu hef ég flutt mig um set

http://evad.bloggar.is/ 


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 21:08:19 / Eva

I´m back

Er ekki komin tími á blogg-ég held það, ætla reyndar að svindla aðeins og láta ykkur sjá um þetta;) Takið þátt elskurnar.

1. Hvað kallarðu mig?
2..Hefurðu heyrt mig syngja?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hvað erum við mörg í fjölskyldunni?
10. Hefurðu öfundað mig? Hvers vegna?
11. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
12. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
13. Hverjum öðrum er röddin mín líkust?
14. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?                                          
15. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
16. Hvernig stráka fíla ég?
17. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
18. Hvað er mest einkennandi við mig?
19. Hvaða búðir elska ég að fara í?


» 5 hafa sagt sína skoðun

31.05.2006 23:18:17 / Eva

Á morgun segir sá lati...

Halló Halló farin að sakna mín?

Er að spöggulera í að taka smá sumarfrí í blogginu í óákveðin tíma eða þangað til að ég finn hjá mér þörf að gaspra mikið um sjálfa mig... gefum þessu viku;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 20:32:52 / Eva

He didn´t know how to twist

Tvær úr tungunum skelltu sér í stórborgina yfir helgina og áttu gott geim, góðan drykkjuleik, gott samtal við ALLA sem voru í símaskránni í símanum mínum og hreinlega líka þá sem voru alls ekki þar-sorrí fólk:^)

Skemmtilegast fannst mér þegar Finnar tóku Evróvision í nefið og ég hafði ástæðu- eða fannst ég hafa skothelda ástæðu til að öskra á alla sem ég þekkti og þekkti ALLS ekkert "hard rock halelujah" með skrímslaröddinni minni- sorrí fólk:^)

Fannst mér líka skemmtilegt að segja rauðhærðu fólki sem var með derhúfu að það væri ekki fólk sökum hárlitar þess- sorrí Bjössi:^)

Öll þessi gleði var í boði einungis kippu af víking, fleyg af vodka og ótaldra opalskota, húmor hans sem öllu ræður að gefa mér EKKI blackout svo að ég geti örugglega munað allan skandalinn minn:^) sheise.

En ferðin yfir heiðar byrjaði vel og höfðum við það af að komast í Staðarkála að þessu sinni og ákváðum við að halda upp á það með því að stoppa og pissa og þar sá ég typpi sem einhver átti og var að nota það til að pissa-loka hurðinni fólk:!: er ég kem askvaðandi út til að segja Birnu frá því að ég hefði séð skaufa er hún í hláturskasti af því að einhver maður hafði spurt hana hvort hún ætti heima í Staðarkála8| Hún brást vel við og bauð honum inn í stofu í kaffi og kleinu:haha: Er við héldum áfram sáum við annað typpi sem líka var verið að nota til að pissa - tip of the day: snúið ykkur frá þjóðveginum ef þið þurfið að pissa.

Over and out Eva öðru nafni Hard Rock Halelujah....


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.05.2006 18:15:15 / Eva

Áttu egg?

Hvað segi þið kútarnir mínir? Eru þið ekki hress og kát? Þá er komið að pistli vikunnar8| eru þið tilbúin?

Í vikunni fór ég til spákonu úgí, búgí, hún sagði mér ýmislegt til dæmis

Á ég eftir að kynnast manninum mínum mjög óvænt...dadara (ég mun semst eignast slíkan, vúhú fyrir mér:!: )

Að ég ætti eftir að verða mjög grönn8)... það sem ég er að vona er að ég þurfi ekki að hafa mikið fyrir því;)

Að mér þætti vænt um einhverja tvíbura... hún hefur nottlega verið sky high þessi kella:lol:

Hún sagði að ég ætti að eftir að verða eitthvað merkilegt þegar ég mundi læra að elska sjáfa mig, ég ætti eftir að skrifa mikið og að ég ætti auðvelt með að skrifa og fjölmiðlafræði ætti vel við mig. Eða þá að ég myndi verða leikkona því að ég væri góð í því, ég ætti eftir að halda marga fyrirlestra í sambandi við félagsfræði.

Að ég væri þrjóskari en andskotinn, að sjálfsögðu hefur skrattinn ekki roð í mig það segir sig sjálft:klikk:

Einnig sagði hún að ég væri AFAR góður bílstjóri (já lesið þetta aftur hægt), þannig að ef ykkur vantar far eitthvert þá er ég mjög lunkin ökumaður:haha:

Jæja þá held ég að ég sé búin að fullnægja egóþörfum mínum og geti farið að tala um eitthvað annað. Ég var spurð að því um daginn hvort að ég gæti málað vinkonu mína fyrir giftinguna hennar. Að sjáfsögðu svaraði ég með mikilli hjartagæsku og einlægni að það myndi aldrei gerast að einhver vildi giftast henni:!: Þá svaraði bjöllusauðurinn "nei það er alvetg rétt hjá þér allavega ekki með þessu FRAMhjáhaldi" að sjálfsögðu átti þessi elska við ekki með þessu áframhaldi:lol:

Býflugurnar eru farnar á stjá og eru þær á stærð við ágætis fótbolta, vekur það mikla lukku hjá flestum að þessar elskur skuli vera á sveimi. Þegar skuggann af Bíbí bolta (já við skírðum eina) lagði yfir svalirnar í vinnunni um daginn hafði ein svo miklar áhyggjur af því að Bíbí mundi fara inn fyrir gleraugun hennar og festast þar8| Ég héld ég mydni andast úr hlátri... sjáiði þetta ekki alveg fyrir ykkur maneskju með loðinn fótbolta í auganu.

 

Jæja þetta er orðið gott í bili.

-Bíbí bolti kveður


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 17:19:37 / Eva

As confused as a blind lesbian in a fish market

Fæ ekki nóg af laginu -Crazy með Gnarles Barkley- þessa dagana, bara snilld:!:

Var að kaupa mér nýtt ilmvatn og nú anga ég eins og blómaengi að vorlagi...lövelý að fá smá nýbreytni frá skítalyktinni sem umlykur mig vanalega;)

Jæja þá er komið að skuldadögum, þar sem ég lét "ógeðslega" mynd af tvíbbunum í síðustu færslu var mér bent á að ég gæti bara sett ógeðismynd af sjálfri mér hér inn og það er akkúrat það sem ég ætla að gera:haha:

Ofsalega lekert outfit verð ég að segja og brjálæðislega svöl greiðsla ef greiðslu skyldi kalla.

Átti góðan leik í vinnunni um daginn þegar ég skreiddist nývöknuð (óvöknuð) og píndi eitthvað aumingja manngrey til að taka þátt í könnun og í miðri könnun spyr ég hann "hversu oft SORPARU FLOKK?" áttaði ég mig strax á mistökum mínum og leiðrétti mig eða ætlaði að reyna það og spyr "Nei ég meina hversu oft sorparu flokk?" Maðurinn grenjar úr hlátri er hann spyr mig hvort ég sé að meina hversu oft hann flokki sorp? Shet hvað er erfitt að tala nývaknaður:S

Jæja svo er það nýr leikur sem að Birna startaði á sinni síðu en það er leikurinn "allir að kvitta" og er hann afspyrnu skemmtilegur og hress, ekki það að þið eruð mjög dugleg að kommenta hér- GOTT MEÐ YKKUR- 


» 17 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 18:45:53 / Eva

one, two, three

Ví minnz er orðin frískur og farin út að leika sér í góða veðrinu8)

Fór í sveitina í gær þar sem allt er morandi í kiðlingum og lömbum, eru svo sæt þessi grey.

Einn geitkálfurinn var sofandi þegar pabbi mokaði honum upp til að fara í myndatöku, kálfurinn lét það ekki á sig fá og hélt áfram að dotta... bara sætur

Þar sem pabba og mömmu fannst ekki nóg að eiga tvíbura (sjá mynd að neðan)...

Þá skelltu þau sér í það að framleiða þríbura...

Svo mikið músí, músí eitthvað (þríburarnir það er að segja:D)

Jæja hafið það gott í sólinni8)


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 18:45:18 / Eva

As confused as a baby in a topless bar...

Sjaldan hefur mig langað eins mikið að rjúka út og skokka, fara í sund eða fara á línuskauta. Ekki það að ég sé fær um að gera einhvern af þessum hlutum eða hafi einhverntíman áður á ævina fengið óstjórnlega löngun til að gera eitthvað af þessu. Ástæðan fyrir því að mig langar til þess núna er það að ég hef skothelda og löglega afsökun fyrir að gera engan af þessum hlutum... because I´m sooooo

Annað hvort svitna ég eins og hóra í Vatíkaninu eða skelf eins og hrísla í stormi ótrúlegt en satt þá eru geðsmunirnir ekki svona sveiflukenndir. Svei mér þá ef ég er ekki að fullorðnast og farin að hafa gott lag á geðsveiflunum hallelúja. Oft hef ég hneykslast á fólki sem nennir að skrifa á bloggið sitt heilu sjúkrasögurnar einungis til að vorkenna sér og fá fólk til að kommenta samúðarkomment. En ég verð alveg SNAR (þarf að endurskoða þetta með jafnaðargeðið) ef þið vorkennið mér ekki heilmikið og kommentið á þessa veikindafærslu.

Annars er lítið í fréttum Stella gella er lögð á stað í nævintýrið mikla út í hinum stóra heimi, og mun ég sakna hennar mikið böhöhöhö. Hér er mynda af okkur stöllum á góðri stundu...

Stella mín gangi þér vel í Danmörku og ekki síður í Afríku, veit að þú átt eftir að standa þig eins og hetja, þú ert svo dugleg.

En að öðru ,hafiði fengið þessa tilfinningu að það sé ekkert sem vantar í líf ykkar og það hreinlega eigi ekki eftir að gerast mikið betra? Þetta er svona ótrúleg hamingjutilfinning sem endist í smá stund og svo er allt orðið venjulegt aftur. Ég er frekar einföld sál augljóslega því að ég fékk þessa tilfinningu í dag og það sem þurfti til að kveikja þessa tilfinningu var friends spóla og kókglas.

En jæja Eisi bróðir er kominn heim ég ætla að fá hann til að vorkenna mér:haha:


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.04.2006 23:37:29 / Eva

summertime

Ja sko haldiði ekki að sumarið sé mætt á svæðið8) Þá fer Daddi litli að fara á "hversdagsdekkin" eins og einhver ónefndur samstarfsmaður kallaði sumardekkin í einhverju óðagoti.

Páskarnir gengu nokkuð stórslysalaust fyrir sig ef frá er talið eitt gott spilakvöld sem endaði með því að maður var sendur í hreingerningar og læti8| má það? Annars var bara tekið því rólega um páskana farið í sveitina og leikið við gamla fólkið...

 

Pabbi reyndar meira fyrir að leika sér að dótinu sínu heldur en við barnið sitt:cry:.

Síðan var töluvert glápt á sjónvarp eða annað álíka sem fól í sér að snúa tánum upp í loft. Var búin að gleyma því hvað Donnie Darko er góð mynd, bara snilld, svolítið spes en þrusumynd engu að síður.

Fólk er búið að vera últra hæper núna eftir allt páskaeggjaátið og talar eintóma steypu sökum þess að sykurinn sullar í æðunum og fólk frussar út úr sér allskonar vitleysu í hálfgerðri sælgætisvímu. Dæmi:

Hann var eitthvað illa uppsettur þessi = Hann var eitthvað illa upplagður þessi

Geitkálfur = Kiðlingur

Hversdagsdekk = Sumardekk

Ganga yfir annan og hinn = Ganga yfir mann og annan

Æji það var voða lítið kjöt utan á þessu bloggi eitthvað, en jæja gengur betur næst...


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 20:28:47 / Eva

GeitUngi

Í dag fór ég með Birnu að sýna henni hin dýrin í sveitinni:D

Leist þeim vel hvort á annað og þegar Birna var búin að hengja einn kibbann í smástund...

...þá fékk litli kibbi að lúlla smá í fanginu á Birnu sinni

Það fannst honum voða gott og vildi helst fara með henni í bæinn;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 12:02:04 / Eva

Bjór úr krana

Er SVOOOO þunn:!: Mér er heitt, mér er þyrst, mér er illt í rassinum af því einhver bakkaði á hann, mér getur ekki sofið, mér er illt í hausnum. Hver vill koma og brynna mér?

Langar að þakka stuðningaðilum þessa djamms í gær og þá fyrst henni Huldu Maríu fyrir að hýsa okkur  (þegar ég segi okkur þá á ég við mig og alla hina persónuleikana mína8|) og neyða okkur á fyllerí en vera edrú sjálf. KB banki styrkti útsendingu á þessu djammi með því að láta kortið aldrei hringja þannig að ég þyrfti nú aldrei að bíða eftir næsta drykk á barnum, brillíant alveg TAkk KB... Leigubílstjórinn sem skutlaði okkur Guðrúnu heim á líka þakkir skyldar fyrir að hafa komist alla leið heim án þess að deyja hreinlega úr elli.

Jæja ætla að þynnkast, klára þessa færslu síðar þetta er svo erfitt, síjú


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 00:05:41 / Eva

kynlífsfíkill...

Jæja flott að vera búin að ná athygli ykkar með titlinum;) þá getum við farið að ræða alvarlegri málefni...

Mál málanna í dag er að sjálfsögðu veðrið eða hvítagullið sem streymir af himnum ofan stanslaust alla daga núna. Skiptir mig svo sem litlu máli, hef voða gaman af því að moka/ýta/draga/drössla bílnum úr skaflinum á morgnana, kom lafmóð og sveitt í vinnuna í fyrradag eftir morgunleikfimina með honum Dadda (Daihatsu) mínum. Í dag sá ég mér samt leik á borði og lét Birnu mína ýta meðan ég sat og stýrði8) hafði kella afar gaman af þessum leik og þegar sem hæst stóð var hún komin niður á hnén og ýti aftan á af öllum lífs og sálar kröftum meðan ég reyndi að BAKKA Daddanum:haha: . Nejj segi svona hún var allavega komin á hnén af æsingi og með þessum æfingum sparaði hún sér ferð í ræktina, verði þér að góðu Birna mín og takk fyrir pushið.

Ekki nóg með það að það sé skemmtilegt og hressandi að drössla Dadda af stað í þessu veðri þá er líka oft á tíðum fljúgandi hálka undir hvítagullinu. Á þessum tæplega þrem sólahringum sem eru búnir að einkennast af bongóblíðu svona veðurfarslega séð er mér búið að takast að fljúga þrisvar sinnum ( einu sinni fyrir hvern dag sjáiði) á höfðuðið. Hefur mér tekist að halda þessum flugferðum nokkuð leyndum og tel að enginn hafi orðið vitni af þessum tignarlegu og glæsilegu föllum. Fyrir utan þriðju og síðustu dettinguna sem átti sér stað núna rétt í þessu er ég flaug á afturendann fyrir utan útidyrahurðina á blokkinni. Það þurfti nottlega endilega eitthvað manngrey að vera að moka plannið akkúrat á sama tíma og ég var að testa lendingarbúnaðinn. Ég spratt á fætur og leit snöggt aftur fyrir mig í von um að hann hefði ekki verið að horfa á mig en að sjálfsögðu blasti við mér andlit með risavöxnu sólheimaglotti:S. Að sjálfsögðu hló ég hátt og innilega og reyndi að brosa mikið svo að gröfumaðurinn sæi að ég hefði húmor fyrir sjálfri mér. En í rauninni grét ég sáran innra með mér, ekki af því þetta var ekki fyndið heldur var þetta svo vont líka. Þannig að ég skrönglaðist upp stigann hlæjandi og grátandi til skiptis gat ekki ákveðið hvort þetta væri meira vont en fyndið eða meira fyndið en vont. Such big problems I have.... :$

-Eva tilvonandi mannbroddaeigandi


» 9 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 22:02:16 / Eva

Kertaljós og rómantík...

Rómantísk helgi að líða hjá átti notalega og rómantíska samverustund með Birnu og Ragnari í gærkvöldi en við Birna skondruðumst og leigðum okkur vídjó. Fórum heim með töluvert magn af sælgæti í poka og hlömmuðum okkur við hliðina á Ragga í TVEGGJA manna sófanum okkar. Fór vel á með okkur til að byrja með en Ragnar flúði sófann fljótt (eða þegar góða nammið var búið) og breyddum við Birna þá okkur í sófakvikindinu. Þegar vel var liðið á seinni myndina sem við leigðum voru kútarnir þrír sofnaðir með snert af sælgætiseitrun8|.

Þar sem að þessi færsla er í boði Gallup og átakanlegu miklu magni af kaffi er við hæfi að hafa þetta vinnupistil;) En eins og flestir vita á ég ekki mikla samleið með ungum börnum og þetta veit yfirmaður minn og því fannst henni ekki úr vegi að prufukeyra samskipta hæfileika mína á eldri kynslóðinni. Var ég send í það verkefni um daginn að hringja í eldra fólk og spurja það nokkura spurninga eftirfarandi samtöl eru afrakstur þeirra símtala. Það skal tekið fram að nöfnum hefur verið breytt til að bregðast ekki trúnaði.

Samtal

Ég: góðan daginn Eva heiti ég og hringi frá Gallup er Gunna við?

Gamli: (öskrar) HA?

Ég: (í örlítið hærri tón en síðast) góðan daginn Eva heiti ég og hringi frá Gallup er Gunna við?

Gamli: ER ÞETTA SIGÞRÚÐUR?

Ég: Nei ég er að hringja frá Gallup

Gamli: (öskrar hærra) FRÁ DANSSKÓLANUM?

Ég: (rauð í framan af áreynslu við að tala hátt) Nei frá Gallup

Gamli: (farin að góla) ERTU AÐ HRINGJA FRÁ LANDSBANKANUM?

Ég: (örvæntingin leynir sér alls ekki í röddinni er ég garga) Eva heiti ég og hringi frá Gallup

Gamli: (segir í eðlilegri tónhæð) Er þetta Lilla? Ég hringi í þig á eftir! og skellir á :!::!:


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 14:31:28 / Eva

Kjúlli

Þar sem ég veit að margir hræðast fuglaflensuna er ég búin að grafa upp nokkrar varúðarráðstafanir sem fólk getur fylgt ef það er hrædd við hana.

Forðast skal snertingu við dauða eða sjúka fugla. 

Þvoið hendurnar vandlega oft á dag með vatni og sápu, einkum áður en matar er neytt. Þurrkið hendurnar vel með hreinu handklæði eða pappírsþurrku.

Láta bólusetja sig – ef bóluefni er til.

Reglulegur handþvottur.

Halda sig heima ef maður er veikur.

Ef þið þrátt fyrir þessi varnarorð takið upp á því að deyja úr fuglaflensunni er allavega ekki hægt að segja að ég hafi ekki varað ykkur við að vera ekki að leika ykkur með fuglshræ...


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 21:35:22 / Eva

Las það í Samúel

Las í DV áðan 7 góðar ástæður til að elskast þær eru reyndar bara 6 en hér koma þær:

1. Kynlíf læknar stress

2. Kynlíf gerir þig granna

3. Kynlíf bætir sjálfstraustið

4. Kynlíf læknar verki

5. Kynlíf er vörn gegn kvefi

6. Kynlíf fær þig til að blómstra

Ég veit hvað er að mér ég er stressaður, feitur og kvefaður einstaklingur með mikla verki og lítið sjálfstraust sem hefur ekki blómstrað lengi. Óska eftir einstaklingi helst myndarlegum karlmanni til að lækna mig af þessum kvillum mínum:haha::haha::haha:


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7